Marmið sumarsins míns var ekki að djamma, versla, tana og eignast nýja vini. Markmið sumarsins var ekki að fara til útlanda, marmið sumarsins var ekki að vinna sjúklega mikið og verða sjúklega rík.
Markmið sumarsins var hinsvegar að gera eithvað uppbyggilegt. Njóta tíma með fólki sem skiptir mig máli og kynnast sjálfum mér. Borða góðan mat. Spara pening fyrir nýjum tækifærum og betri framtíð. Já ég er orðin algjör fokking kelling. Ég hélt ég ætlaði að gubba yfir mig þegar ég koma að sjálfum mér að dreyma um hið fulkomna eldhús. ELDHÚS af öllum herbergjum í íbúðinni afhverju dreymir mig um fallegt eldhús? Sjálfsögðu skammaðist ég, feministinn og 'karlhatarinn' mín um leið og straujárn var komið í spilið.
Því næst tók ég upp á því að taka Sjálfstætt fólk úr hillunni, með markmiðinu að byrja undirbúning fyrir næstu önn í MH. Tek samt fram að þrem tímum, tveim blaðsíðum og góðum svefni seinna rankaði ég við mér, með bókina krumpaði undir mér.
En þetta er ekki það eina. Ég er byrjuð að stunda það að drekka kaffi ekki bara um morgnanna heldur um miðjan daginn líka og þá helst með kökum og kexi. Mér finnst gaman að skoða myndaalbúm frá fornöld. Mér finnst girnilegt að liggja heima með mömmu fyrir framan Barnibi á föstudagskvöldum. Ég er með samviskubit dag eftir dag eftir pizzuát. Ég er þreytt á vinnunni minni. Og það versta var, þegar ég kom að sjálfum mér að segja ,,owwwwwwwww" við barn um daginn. Ég HATA börn. HVAÐ ER Í GANGI?
No comments:
Post a Comment