
Um daginn horfði ég á myndina Cry Baby. Ég bjóst nú ekki við öðru en að ég yrði ekki fyrir vonbrigðum enda er þetta Jon Waters mynd, sami maður og gerði Pink Flamingos og Serial mom, s.s. SNILLINGUR.
Í Cry Baby gerir John grín að tímabilinu eftir heimstyrjöld seinni þegar Elvis var heitasti maður í heimi. Þegar steriotýpurnar voru ekki hafnarboltagæjinn, druslan, nördinn, vinsælastelpan heldur "drapes" og "square". Drapes eru með gelað hár aftur, leðurjakka og levi's buxum. Sques eru mjög siðprúðir, snyrtilegir og áhorfandanum finnst þeir afar óspennandi.
Eins og í öllum John Waters myndum eru rosalega sterk karakter einkenni, sterkar týpur svona eins og Divine og bara allar persónurnar í Pink Flamingos.

Johnny Depp karakterinn er reyndar ekkert spes hann fellur kannski dáldið í skuggana á skemmtilegu týpunum sem eru í drapes genginu. Ólétt unglingsstelpa reykjandi og drekkandi bjór með tvö börn heima. Hatchetface, alveg merkilega óheppin í smettinu og afar sérstök og mamma hennar selur sígarettur og fær síðan einhver lungnasjúkdóm og er chillandi í Steel-lung tæki með eina í kjaftinum (http://en.wikipedia.org/wiki/Iron_lung). Og síðan er það Wanda sem er svalasta pía sem ég hef séð, bullandi heit og algjör skörungur.
En þegar ég var að horfa á aukaefnið á disknum var sí verið að tala um Traci Lords (Wanda) og vesen á henni á meðan tökum stóð og eins ég er þá gat ég ekki haldið aftur að mér og fletti henni upp. Og ég er að segja þér það satt, þessi leikona Á æsku.

Traci Lords
Traci ólst upp Ohio með foreldrum sínum. Faðir hennar var alkolisti og nauðgar henni þegar hún var tólf ára. Seinna flýgja mæðgurnar frá honum og mamma hennar kynnist nýjum manni, Roger kók sala sem misnotar hana líka. Seinna hætta þau saman og Traci flytur með honum og þau segja öllum að hann sé stjúpfaðir hennar. Gefur henni skilríki sem sýna fram á að hún sé tvítug og hendir henni útí klámmyndabransann.
Traci vinnur sér inn frama í þessum geira og leikur í myndum eins og "What gets me hot!", "Talk dirty to me part III" og þegar hún er búin að leika í meira en 100 klámmyndum og orðin mjög eftir sótt klámstjarna. Kemst hún inn í einn virtasta leiklistarskóla í heimi Lee Strasberg Theatre and Film Institute skólann sem hafa hýst Marlyn Monroe, James Dean, Robert DeNiro og Angelina Jolie svo dæmi séu nefnd.
Eftir að hún er útskrifuð úr skólanum er hún búin að vera leika í ég ætla ekki að segja frábærum myndum en viðurkenndum, myndum sem hafa verið að þéna mikið og hún lifir á. Eins og t.d Blade, Melrose Place og að sjálfsögðu Cry Baby
Mér finnst bara svo Ótrúlegt að hafa farið frá því að vera nauðgað af báðum mönnum mömmu sinnar og búa hjá dópsala 15 ára gömul og leika í friggin klámmyndum í að komast í þennan viðurkenndan skóla og fara að leika í viðurkenndum myndum. Að ná markmiðum sínum. Ná þessum umtalaða sucess sem allir þrá.
Samkvæmt því sem ég er búin að vera læra í félagsfræði er þetta ekki uppskriftin af því hvernig þetta á að gerast.
Vesenið sem var á henni á tökustað Cry Baby var að FBI tók hana fasta fyrir að vera 15-18 að leika í klámmyndum. Sem mér finnst samt frekar spes, frekar að taka framleiðendurna fasta. En nú er hinsvegar búið að taka allar myndirnar til baka, þar sem hún var undir lögaldri í þeim öllum.
Væri alveg pottþétt fróðlegt að horfa á 80's klámmynd, get ímyndað mér að þær séu allt allt allt öðruvísi en subbulegu klámmyndirnar sem eru ríkjandi nú til dags (svo ég hljómi eins og algjör amma).
Skemmtileg staðreynd: "Be there or be square" er frá þessum tíma.

Skemmtileg staðreynd 2: Disney fólk fengu Divine útlitið lánað þegar þeir bjuggu Ursulu í litlu hafmeyjunni til.
Líkindi ójá.