Thursday, May 13, 2010

Gamangamnangamm

Jæja þá er þetta tímabil í lífi mínu búið. Eða svona þangatil í vetur. Þetta leiðinlega tímabilið þar sem ég fer ekkert útúr húsi, vakna í náttbuxum og þarf ekki að skipta um föt þegar ég fer að sofa nóttina þar eftir. Það gæti hljómað frekar næs en ég get lofað þér því að það er meira óþolandi en túrverkir.

Já ég er að tala um vorprófin.

Stressbólur.
Spik.
Sjálfsvorkunn.
Kvíði.
Kláði í fingrum.
Kaldar hendur.
Skítugt hár.
Leti
og ekki má gleyna lönguninni í að liggja og gera ekki fokking skít.


En samt sem áður gengur mér aldrei jafnvel og ég læri mikið. Satt að segja gengur mér oft illa. Ein fyrir framan blaðið.

Nú ætla ég hinsvegar að taka mig saman í andlitinu. Fara ÚR náttbuxunum, fara í sturtu og gera eithvað uppbyggilegt. Kannski raka af mér feldinn sem hefur myndast á leggjunum og fara að djamma eða eithvað.



En svo ég fari úr einu í annað þá er þessi bloggsíða glæný. Ég er álíka jafn ný og hún í þessu blogg heimi. Hef ekki átt bloggsíðu síðan í 8undabekk en það samt telst eiginlega ekki með. Þá var ég bara að búa til slúður um bekkjabræður sem væru að fara í kynskiptiaðgerð fyrir fermingu og blogga um hvað ég hefði átt ógeðslega skemmtilegan dag.

Kann ekkert á þetta dæmi, mikið flóknara en ég hefði ímyndað mér, svo mikið hægt að velja og gera. Það er mjög gaman.

Bloggið sjálf, færslan er samt númer eitt. En ég mun samt ekki koma til með að vera geggjað arty hérna. Mun ekki setja inn myndir af módelum sem láta mér líða illa með sjálfan mig. Ég mun ekki skrifa á ensku og ég mun ekki nota þessa bloggsíðu til þess að skapa einhverja ytri mynd af mér sem ég vil að aðrir sjái mig sem. Yfirborðskennd fer í mig.

Ég mun hinsvegar einfaldlega bara gera það sem ég geri best. Nöldra. Segja frá einhverju sem mér finnst skemmtilegt, merkilegt og áhugavert.


Gott í bili.
K

No comments:

Post a Comment